Fálkar er ekki einungis krullulið með merkilega sögu heldur merkilegt nafn. Liðið fékk nafn eftir íshokkíliði vestur í Winnipeg í Kanada, The Winnipeg Falcons.
Saga Fálkanna frá Winnipeg er stórmerkileg en í sem allra stystu máli var liðið stofnað 1911 af sonum íslenskra innflytjenda í Kanada. Ástæða þess að Íslendingarnir stofnuðu sitt eigið lið var sú að vegna fordóma í þeirra garð fengu þeir ekki að ganga til liðs við heimaliðin í Winnipeg. Fyrsta árið enduðu þeir í neðsta sæti deildarinnar í Winnipeg.
Næstu árin styrktist liðið til muna þegar fleiri og fleiri sterkir íslenskir íshokkímenn gengu til liðs við Fálkana. Veturinn 1919-1920 sigraði liðið í Allan Cup og tryggði sér réttinn til að leika fyrir hönd Kanada á Ólympíuleikunum í Antwerpen í Belgíu 1920. Þá var í fyrsta skipti keppt í íshokkí á leikunum. Liðið vann Tékka 15-0, Bandaríkjamenn 2-0 og Svía 12-1 á leið sinni að sjálfu gullinu. Semsagt yfirburðalið á sinni tíð.

Fálkarnir eru semsagt fyrstu – og einu – íslensku gullverðlaunahafarnir á Ólympíuleikum. Í sigurliðinu í Antwerpen voru eftirtaldir: Robert Benson, Walter Byron, Frank Fredrickson (fyrirliði), Christian Fridfinnson, Magnus Goodman, Haldor Halderson, Konrad Johannesson, Allan Woodman, Lou Marsh (framkvæmdastjóri), Herbert Axford (þjálfari), Bill Fridfinnson (ritari) og Gordon Sigurjonson (þjálfari).
Þrátt fyrir hinn glæsta sigur í fyrstu íshokkíkeppni Ólympíuleikanna fengu Fálkarnir ekki viðurkenningu heima í Kanada. Sigri þeirra var eiginlega afneitað og það var ekki fyrr en 29. apríl 2006 sem liðið var formlega tekið inn í hið svokallaða “hall of fame” hjá kanadíska íshokkísambandinu.
Á vefsíðunni
http://www.winnipegfalcons.com/ er að finna ítarlegri upplýsingar um sögu liðsins og tengla á ýmsar upplýsingar sem tengjast liðinu. Einnig er fjallað um þátttöku liðsins í Ólympíuleikunum á vef kanadísku Ólympíunefndarinnar á þessari slóð:
www.olympic.ca/EN/organization/news/2006/files/bio_falcons.shtml
Efri myndin er af liðinu frá 1924 en sú nýrri var tekin þegar nýtt lið með nafnið Winnipeg Falcons kom til Akureyrar og lék gegn kvennaliði SA. Svo skemmtilega vildi til að tveir liðsmenn úr krulluliði Fálka, þeir Árni og Haraldur, voru starfsmenn á leiknum og létu að sjálfsögðu mynda sig með Fálkunum frá Winnipeg eftir leikinn.