Tuesday, November 07, 2006

Englandsferð Fálka 9.-13. nóvember 2006

Fréttatilkynning vegna þátttöku liðsins á mótinu í Englandi.

Vonandi verður hægt að flytja fréttir af gengi liðsins hér á blogginu jafnóðum og leikjum lýkur. Fyrsti leikur liðsins er kl. 10 á föstudagsmorgun og annar leikurinn strax kl. 13 sama dag. Þriðji leikur liðsins hefst kl. 11 á laugardagsmorgun en tímasetningar leikja eftir það fara eftir árangri í fyrstu þremur leikjunum. Liðsmenn Fálka í Englandsferðinni verða þeir Haraldur Ingólfsson fyrirliði, Þorgeir Einarsson, Bjarni Sæmundsson og Árni Arason. Sjá nánar í fréttatilkynningu.

No comments: