Fálkar tóku sér frí haustið 2007 þar sem raðir liðsins voru byrjaðar að þynnast. Árni Ara þjáðist af eymslum í öxlum og þurfti að draga úr krulluiðkun, Sigfús gekk til liðs við Svarta gengið og Þorvaldur tók sér frí frá svellinu. Haraldur gekk tímabundið til liðs við Garpa.
Janúar 2008:
Fálkar skráðu lið til leiks í Bikarmóti Krulludeildar, meðal annars til að koma fjölda liða upp í jafna tölu (10). Liðsmenn: Haraldur Ingólfsson, Þorvaldur Gunnarsson, Gunnar Þorvaldsson og Jóhanna María Elena Matthíasdóttir. Liðið lék gegn Bragðarefum í fyrstu umferð mótsins, úrslitin 1-6, og féll liðið úr keppni.
Í beinu framhaldi af þátttöku í Bikarmótinu var ákveðið að slá til og skella sér í Íslandsmótið 2008 undir merkjum Fálka. Árni Ara gekk til liðs við Skytturnar. Fálkar enduðu neðstir í Íslandsmótinu, gerðu tvö jafntefli, enda samanstóð liðið að meirihluta af nýliðum í íþróttinni. Því miður er ekki til mynd af þessari síðustu útgáfu af Fálkunum sem þó eiga vonandi eftir að lifna við aftur þótt síðar verði.
No comments:
Post a Comment